í litlum lófa mér,
sofnar lóa skjótt.
frostkalt og hvasst er úti
hvað var hún að gera hér?

í litlum lófa mér,
skelfur lóa ótt
burt frá bölvuðu landi
beint hefur ætlað sér.

í litlum lófa mér
sefur lóa rótt.
upp til hæðstu hæða
nú hefur komið sér.
“Enginn veit til angurs fyrr en reynir”