Undurhljótt barði ósýnileg nóttin að dyrum
og silfurtærar stjörnur

fálætislegir söngvar þrasta
bárust inn um gluggann

og rétt um miðnætti
ummynduðst nætursólargeislarnir
í marglita gullbrú
sem lá þvert yfir flóann

til fyrirheitna landsins

til fyrirheitna landsins