Á ofsahraða með fjölmiðlapóst,
fregnir af styrjöldum bárust.
Hvenær verður manninum ljóst,
að stríð eru saklausum sárust.

Yfir eyðimörk, úthaf og frosið hjarn,
ferðast mynd sem er fréttunum fengur.
Hún sýnir lítið grátandi barn,
sem enga á foreldra lengur.

Getum við hin á hryllinginn bent,
og sagt, þetta þykir mér verst.
Þegar börnunum okkar af tölvum er kennt,
að með ofbeldi þrífumst við best.

maggiant