Og svona er ljóðið.

Það heitir
ODDAFLUG

Hugsanirnar streyma hljóðlaust
um í hausnum mínum
orðin fljóta hugsunarlaust
út úr munni mínum

En hátt kveð ég mína raust,
með stolti og sjálfstæði,
og samkvæmt 5.gr. laga,
er það tómt kjaftæði.


Viðlagið

En eflaust naga
áhyggjurnar okkur inn að beini
en fuglar fljúga óttalaust
um í oddaflugi

já fuglar fljúga óttalaust
um í oddaflugi