það hangir
gallsúr lundabaggi
í hrútspungnum á mér
sultan mín sviðin
og heilinn í pækil

þarna kemur hvalurinn,
segja börnin
með bringukollana

en ég er bara hákarl
súr og sveittur
seigur og sterkur

komdu hérna með pylsuna súru,
segir konan mín
súra…


loftnet á rauðan Bronco
og
barka á gula Nilfisk ryksugu?

sextán menn sögðu þetta
á þorrablóti
í sex-town
í gullbringukollasýslu


Þarna kemur þrællinn
segir maðurinn
með hrútspunginn
og tóbakið