kondidorinn
á kaplaskjólsvegi
er köttur

kunnugur í hverfinu
kvikur og kúl

keimlíkur kristjáni
og kaldhæðinn

kannski vill hann
kyssa mig
kötturinn

svo kvenlegur
og kynþokkafullur
sem hann kann
að vera…

kannski