þú ert það sem þú segir
en þú ert hljóður og segir mér ekki neitt

þú ert það sem þú borðar
en þú ert frekar matvandur og klígjugjarn

þú ert það sem þú hugsar
en stundum held ég að þú gerir það hugsunarlaust

þú ert það sem þú heyrir
en þú virðist aldrei hlusta

þú ert það sem þú gerir
en þú gerir helst ekki neitt

þú ert það sem þú sérð
en þú starir yfirleitt tómum augum á vegginn

þú er það sem þú vonar
en þú átt þér enga von

þú ert það sem þú óskar
en það myndi aldrei rætast…

…afþví þér líður ágætlega

þú hefur sjónvarpið,
kaffibollann, tóbakið og sjerríflöskuna
og ýmiskonar óþverra
og óþarfa
og mig