Þar sem mætast, mar og jörð
mun ég ávallt standa vörð.
Langan veg um loftið vært
ljós mitt blikar ofurskært.
Hættum við skal vara þá
sem vaskir sigla hjá.

Vörð ég stend um ár og öld
einn, um niðdimm vetrarkvöld.
Bjartan dag sem dimma nátt
dvel ég hér í lífsins sátt
og samlyndi við sjávarnið,
minn sálar innri frið.

Þótt stormsamt sé og stinningskalt,
þótt stálgrá þokan hylji allt,
þótt löng sé nóttin, líflaus, svört
eru ljós mín allar tíðir björt.
Æ mun veginn vísa þeim
sem vilja rata heim.