Bíð fullur eftirvæntingar
eftir að hjartað kreisti út dýrmæt tár
loks stendur eftir rakur steingervingur
vel vaxinn með photoshop bros
vísitöluelskhugi með sæta rauða rós

lífið horfir á með glottandi brosi
hefur mótað enn eitt hjartað í stálmót
þúsund hjörtu eftir færinbandinu þokast næ
“True words are never spoken”