Þetta eru kannski hvorki löng né merkileg ljóð en mér datt í hug að ´fara í gegnum stílabækurnar mínar frá því í vetur og skella afrakstrinum hingað.

Væri æðislegt að fá mörg komment og ekki vera feimin við að drulla yfir þetta ef ykkur sýnist svo.



Erfiði lífsins

Sviði, tár, blóð og sviti.
meira blóð meiri sviti
höfuðverkur, finnst hausin vera að springa
áreynslan gífurleg
helvítis harð-lífið að drepa mig


Vinstri geirvartan

Tungubroddur þinn leikur um hana
vinstri geirvörtuna
þú fitlar einbeitt við hana
vinstri geirvörtuna
þú nartar í hana
vinstri geirvörtuna
ááá! ekki svona fast!
þú bítur hana af, blóðið fossar
niður, sársaukinn er óbærilegur
Ég dey kvalarfullum dauðdaga
í faðmlagi sínu
og þú hlærð, þú hlærð upp í opið geðið á mér
og þú drekkur blóð mitt af áfergju


Svipusláttur

Satanískur svipusláttur
svíður gegnum skinn
drungalega góður dráttur
dauðinn verður minn


Frá Flensu

Hita, svita, hreðjaverki
helvíti er heitt
hósta og hræki skít úr kverki
Mitt herbergi er sveitt


Kúrekinn

Kúrekinn er svaka kátur
í kerlingunum veður
millinafnið hans er Már
með gyllinæð og reður


Helvíti

Í víti er hitinn mjög hár
og holdsveiki öllu þar ríður
þar latex og svipa og ljár
og Lúsífer eftir þér bíður


Skítadjobb

Í sumar vann ég erfiðisvinnu
ég var að hlaða kað
þó af mér dropar svita rinnu
þá fór ég ei í bað

Því lyktin var svo góð
og líkin volg og rjóð
og á mig skvettist blóð
og því sem ég þetta ljóð


Úpps!

Blóði-drifin kanína
hleypur um sléttur kanínuhimna
því að það var eitthvað fokk í kerfinu
svo að refurinn fór óvart þangað
guð lítur á þetta og öskrar:
“Shit! það verður einhver rekinn fyrir þetta!”
svo sprengir guð refinn
og allir verða ánægðir
nema fyrrnefnd kanína sem deyr af sárum sínum
Úpps
Og þá var satan rekinn af himnum fyrir afglöp í starfi



Þetta er svona meirihlutinn en ég tók þó það allra grófasta burt. Og já endilega kommenta.
Here I come to save the day!!!