Í fjarska
rauð ský
sem leka yfir himininn
eins og sár

í fjarska
vonbrigði
til betra veðurs
sem döpur augu horfa á

og að lokum
rignir
og hvessir

hreinsar burt
laufblöð síðasta sumars