Hefur verið sent inn áður, fyrir 2 árum, en ekki af mér. Þetta ljóð er samt eftir mig og ég set það öðruvísi upp en var gert áður.






lifum í trylltu
stríð'útí horni
viljum að við vinnum
til að djöflarnir hopi
finnum fyrir litum
sem vinna gegn-okkur
bindum þá niður
svo þeir vinni með-okkur
hitum í kolunum,
verjumst með orðunum
skyndilega sjáum að þeir allir hopuðu
sigri við fögnum
þartil aftur við lítum
höldum að við töpum
og förum í fýlu
beinagrindur rísa
og líta til okkar
í-dag þær sýna
að lífið er rotta
litirnir koma,
þeir hafa loks leyst-sig
djöflar hætt'að hopa og ráðast á heiminn
einnig sækir á faraldur svo hataður
og er ég reyni að berjast stend ég eftir lamaður
kalt-maður, fattaðu,
að kuldinn er blekking
en er ég hélt því fram var bæld niður sú þekking
kuldinn, sú plága,
skjótt sækir á-mann
að kálast í hausnum svo hljóðlega ég tárast
sá-að
djöflar gerðu samning við kuldann
undrast og hugsa
að að lokum mun ég bugast
litirnir hópast
og hrópa ýmis meiðyrði
þó-að innst inni vilji ég alls engin leiðindi
skærir litir, kuldi og djöflar allt í kringum-mig
lít-stutt-við,
sé hvað við í heiminum dílum-við
of mikið að ráða-við,
svo ég hníf tek upp grátandi
átta-mig, á-að-við, þurfum öll sálarfrið
brátt mun hatrið hverfa til eilífðar,
heitt-í-dag ef sanngirnin mun keyr-í-hlað
slátrandi geng-um
og hlífi nú engum
því að afrek mín munu ger'alla að englum
leyfum því að gerast,
ekki á móti berjast
þetta er ekta,
ekkert slæmt mun þig henda
ef-að bara, allir hefðu samþykkt-það
hatrið-vann, þegar ég sagði-að
kallið-allt væri að við létumst öll í einu
þreyttur geng-um,
heimur af heimsku
heilshugar ákvað að dæma-mig til dauða
særandi, að enginn það var sem kaus-að
nautna njóta,
svo þeir hóta að skjóta
hóparnir hrópa,
svo ég verð að þjóta
Guð mun taka-mig
og gera mig að engli
hatandi skaut ég þarsem hvílir minn heili
seilist í dauðann,
nautna ég hlakka-til
en augun mín víkka því dauðinn er brandari