NÚNA

Ég er að bíða eftir engu.
Dreymdi drauminn, vil ekki að hann rætist.
Allt er í lagi, af hverju líður mér samt illa?

Stíg í heitt vatnið, sem ég sauð sjálf.
Íhuga hvort sneiða eigi sálina út í.
Læt hárið flaksa í gegnum rok og regn.
Fortíðin er mér líka um megn.

Og það er óþolandi að get ekki sleppt, strax núna…