Máð eru spor þín

og þar sem áður þú gekkst
nýkrýndur en þjakaður
renna nú rauðir lækir reiðinnar

og þar sem áður þú baðst
fyrirgefningar og miskunnar
ríkir nú heiftin

og þar sem áður þú lyftir
augliti þínu til himins
rísa nú ránfuglar

Æ, hve máð eru spor þín
þú ógæfunnar sonu