Þið leikið vel
því þið þekkið
áhorfendur

Hann brosir breitt
á meðan við horfum
Leikurinn er hafinn

Við erum leidd í leikinn
þar sem platleikurinn
er þekktur sem raunveruleikurinn

í raun er hann leikur
Og við erum leikaranir
við leiðumst áfram

uppklappið kemur í endanum
þar sem aðaleikarinn er hylltur
með krönsum og blómum

Með orðinn sem völd gefur
gagnrýnandinn okkur hrós
eða rakkar okkur niður

En sýningin verður að halda áfram…
————————————————