FINN, HEYRI OG SÉ

Ég finn þig horfa, þú mátt það alveg…
Á meðan skyrturnar tala (inni í skáp)
og ísskápurinn teflir við tifandi klukku.
Svefninn er stilltur á play.

Ég heyri þig hugsa, þú getur það alveg…
Á meðan tunglið stækkar og stækkar
og ákveður hvort þú verður vondur/góður.
Þú vilt vera góður.

Ég sé þig sitja, þú átt mig alla.
Á meðan skuggarnir sjást
og dansa á veggnum.
Ég gefst upp fyrir þér.