Vont er það að vakna í spýju
Hugsa um skrall og fá svo klíju
Ekki lengur þessi hressi
Lifrin öll í lamasessi
Læðist að mér tremminn kaldur
Illur fyrir ungan aldur
Sektarkennd nú niður svelgi
Í bindindi um næstu helgi