Með tárum og trega ég kvaddi þig
en tíminn líður vonandi fljótt
Stöðugt mig dreymir um þig og mig
Minningarnar ásækja mig í nótt

Í fyrsta skipti upplifði égflugvallarleiða
Ég finn hversu sárt ég sakna þín
En þú gerir leið mína greiða
Góða hjartað þitt gætir mín

Þetta verður algjörlega þess virði
þegar ég kem aftur til landsins
Þá laus ég verð við alla byrði
og þarf aldrei aftur að sakna sambandsins

Ég treysti þér og trúi því
að þú munir eftir mér bíða
Hjá þér bíður sængin hlý
Hlæjandi saman látum við tímann líða

Mig dreymir sífellt um heimkomu mína
Þá munum við skemmta okkur vel
Ég get ekki beðið eftir að sjá ásjónu þína
Ég veit að sú stund verður yndisleg
Ég finn til, þess vegna er ég