Ég er verndari hins góða
Afleiðing hins illa
Er hér vegna syndaflóða
Með þeim þið heiminn eruð að spilla

Fylla hann af allskynns neikvæðum straumum
Illum öndum og hungruðum draugum
En eina sem þið fáið að launum
Að í ykkar draumum
Komist þið að raunum

Að í sannleikanum er falinn
Sá sem var valinn
Að hjálpa ykkur gegnum lífsins þrautir
Og leiða ykkur inn á nýjar brautir

Allt hið illa þið hafið sjálf skapað
Myndað helvíti og niður hrapað
Það eruð þið en ekki djöfullegur púki
Sem viljið að þessari hringrás ljúki

En ef þú krýpur niður og biður
Ekki upp heldur first niður
Mun þá koma yfir ró og friður,
Þá nærðu að skilja
Þeirra lögmál og vilja

Ég er konungur þrumugoð
Hlutverk mitt er að senda boð
Til þeirra í þessu (hvíta) bræðralagi
Og er það af þessu tagi

VAKNIÐ