Læknirinn horfir á mig þungur á brún
ég hef greinst með alvarlegan sjúkdóm
ÁSTARSORG!
þessi vírus er víst jafn gamall manninum
gerir engan mun á litarhætti né stétt

Ætli læknavísindin finni lækningu?
áður en of margir falla fyrir eigin hendi

Kári klári niðurgreiðir víst SMS skeyti
til að skaffa þessi stafrænu tilraunardýr

Ætli hann sé með logo í símanum sínum?
“True words are never spoken”