Fræi var í jörðu villta sáð
von þess sólu á himni björtum sá.
Teygði upp anga sína,  blómabreiðu á
bauð birtu sólar okkar, alla sína þrá.

Sólin varð við beiðni bjartra þráa
sem beina geislabjarma á blómið bláa.
„Myndi það loks verða vinur minn?“
það vonaði og leit upp í himininn.

Með voninni það óx í aðra átt
Í arma bláa blunda myndi brátt.
Er nær dróg útlit geyst varð grátt
Var glæsta blómið ekki lengur blátt?

Það vafði sig um blómið forna bláa
bað um skýringar á litnum gráa.
„Því miður ég er ekki af sömu sort“
Skyldi hér í tilgangsleysi ort?

Blómið sem af fræi í heiminn fæddist
Í fagnaðs leysi hægt að jörðu læddist.
Brátt myndi koma harður, kaldur vetur
kannski næsta sumar gert það gæti betur.