Keyrðu mig blíðlega inn í sólarlagið,
snertu læri mitt varlega.
Horfðu djúpt í tárvotu augun mín,
segðu mér að þú elskir mig ekki.
Fjarlægðu hjartað úr brjósti mér,
stígðu á það með bros á vör
undir vorsólinni
sem fordæmir þig.