Á glugga þinn
hafa verið dregnar
litmjúkar frostrósir

og fyrir neðan
þykk skýin hefur
vetarsólin
komið sér fyrir
og skín á þennan glugga

fyrir utan gluggan
hefur storminn lægt
hann sem í nótt
æddi óður yfir landið
syngur nú vögguvísur
fyrir smáfuglana

í bensínlituðu dagsljósinu
fer lífið á stjá
og leitar þig uppi
handan við gluggan
í litlu húsi

á gluggan
hafa verið dregnar
litmjúkar frostrósi