Hvað ef þú fengir
að ráða litum regndropanna
skreyta með þeim skýin
nota heiðskíran himininn
sem striga

Og svo sem skraut
fáeina skrýtna fugla
flugvélar á flakki
gullinbjarta sól

Mála síðan yfir með svörtu
strá yfir tindrandi geimsteinum
og stöku tungli
sem brosir til þín breitt.
—–