Nokkrir hrafnar
standa yfir hræi af hrút
og éta úr því augun

tveir þeirra
líta upp
taka eftir þér

vot og köld þoka
umlykur mýrina
sem þú stendur í
blautur upp á miðja kálfa

það er lélegt skyggni

krunk-krunk-krá

hefja hrafnarnir sig á loft
og leggja til þín

krunk-krunk-krá

þú reynir að bera fyrir þig hönd
þú reynir að hlaupa í burtu

krunk-krunk-krá

þú fellur við
ofan í kalda mýrina
finnur klær þeirra
læsast í hold þitt

krunk-krunk-krá

(með andfælum þú hrekkur við
vaknar
lítur út um gluggann
í garðinum sitja þrír hrafnar
og horfa á þig
svart augnablik)

krunk-krunk-krá