ehemmm… skoooo… þetta ljóð er víst aðeins öðruvísi en mitt síðasta sem ég sendi inn ;þ En málið er bara það að ég hef “helling” af ljóðum inni á lager núna sem ég hef skrifað niður á blað en ekki nennt að láta inn á huga strax. Þetta ljóð var samið um daginn þegar ég var í mjög skringilegu skapi og langaði til að búa til eitthvert viðbjóðslegt húmorskvæði um Satan og afkvæmi hans ;þ Svo… enjoy!!!!! (eða ekki ;))


-Antikristur II - Rotinn saur-

Rotið eplið fellur sjaldan langt frá fötunni
fíflar eins og ég vaxa villt í sléttu götunni
sem lirfur verða fagrar og illgresið að blómi
í taktleysi fell ég ei að samfélagsins hljómi…

Sem illa lyktandi sápa er áður dvaldi í laugum
ligg ég núna ofnotaður á tilverunnar haugum
uppsoginn brjóstsykur og ónýttur úrgangur
viðbrenndur kalkúnn og burtskorinn “botnlangur”
“Ég er andskotans fituklessa í hjartans miðjutaugum!!!”

Tómur að innan og tilfinningalaus fjandi
tjara fyrir heila og hjarta úr sandi
ónýtur þegn og vítt þekktur fyrir leti
þekkjast mín brögð í mínu svikamylluneti…

Það er helvíti skítt ef sáðlát hefur það skárra
og skýjableik hamingjan er í höndum svo fárra
því þó ég sé hvorki fæddur né dauður
og fátækur í lífi - minn þekkingarauður
þá hrökklast ég undan augum svo grárra…

Og ástlaus eind í rósarinnar þyrni
í frumum mér hatandi meinlætiskirni
á hugum ykkar er ég nagandi naðra
nú hlustið þið ei ef ég tek að blaðra
og þó ég hafi ekki fæðst í þennan heiminn enn
þá skuluð þið hlusta - þið værukæru menn:

“Ég er drottnari í vítum öllum títtnefndum
og öskrandi af þrá - mitt hjarta nær hefndum
við áróðri mínum þið haus hafið hrist
en brátt munið þið sjá: nýjan Antikrist!!!”


-pardus-


Ok… þetta er nú bara framhald af eldgömlu ljóði sem ég sendi einu sinni inn (Antikristur) en það endurspeglar engan veginn trú mína eða hegðun!!! ;þ
Ég er nú frekar trúlaus og kærulaus hvað allt heila klabbið varðar en mér þótti nú allt í lagi að gera smá grín að aumingja Kölska í tilefni jólanna!!! ;þ
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.