Veggirnir hlæja
þeir hlæja að mér
því sólin er sest
við húsið mitt

En veggirnir vita ekki
að sólin er reið
vill losa sig við
lúsina sem var að drepa hana
úr leiðindum

Lúsin brosir
hlær að trjánum
sem hoppa um garðinn
eins og kengúrur

En kengúran gerir ekkert

Henni er alveg sama
þótt trén hermi eftir henni
og brosa