Kuldalegt íslenskt brosið breiða
breiðist yfir snævi þakin firnindi og fjöll
útlenskar pillur vér étum til að forðast leiða
óþolandi velgengni viljum vinna spjöll

stóreygð litlu börnin brosa auðtrúa
á mig og þig henda snjó í hvort annað
grípum þau fast reynum nasir þeirra að núa
verið þæg, því það sem Við gerum er bannað!

margur hefur misstigið sig oní áfengissýkið
týnt sér í gleði fram á fremsta hlunn
passið ykkur bara að skreppa aldrei í Ríkið
annars endið þið bara eins og Hemmi Gunn
“True words are never spoken”