Einhvers staðar
innan úr þokunni
rýfur bíl kyrrðina

tvö ljós
sem stefna
beint á þig

hrímköld döggin
leggst á handleggi þína
og andlit

við veginn
stenda tveir hrafnar
og horfa tinnusvörtum augum
sínum á þig

tvö ljós
sem stefna
beint á þig

í fjarska
má greina árnið

kannski þeir séu að fá’ann
hugsar þú

og loks lítur þú við

tvö ljós
sem stefna
beint á þig

einhvers staðar
innan úr þokunni
rýfur óp kyrrðina