Þær falla!

Ung kona hleypur
út úr brennandi húsi
með barn
undir annarri hendi
og slæðu yfir andlitinu

Þær falla!

Barn lítur furðu slegið
upp í bláan himininn
en faðir þess
kallar ákaft
á það að
koma sér í burtu

Þær falla!

Eldri maður lítur undan
og veit það
að hann mun ekki
komast undan
í tæka tíð

Þær falla!

Vígreifur hermaður
horfir sigrihrósandi á
og fagnar
þessum merka sigri