þegar orðin koma ekki
af sjálfu sér
og ég vil geta horft á þig
horfið inní þig, -horfið
inná sporbaug
drauma þinna
þegar sárin renna ekki lengur niður
andlit vona þinna

ég horfi á þig
anda að þér nýjustu straumunum
og ég finn að ég hverf
-hverf inní svarthol
minninga þinna

og löngu seinna læðist fram lítið bros
fram á varir þínar
þegar þú manst eftir
litla mér
og þá
loksins þá
er ég orðinn þú