Ég dansa á sólinni
og borða skýin
ég flýg um himnana
og hoppa á plánetunum
og nýt þess að lifa

ég var og er
ég sé og skil
og stundum
stundum
stundum
er allt fullkomið
eins og í ævintýri
höll og ríki
fögur prinsessa
sem verður mín
sem verður mín

En þetta er ímyndun
ímyndun
þetta eru þeirra orð
ekki mín
alls ekki mín

ég er máninn
ég er tunglið
og osturinn í himninum

dansa á hnífsblaði
blóðugir fætur
en ég dansa
þar til ekkert er
allt er farið
og ég dansa einn.

Þetta er veröld mín
milli stunda
þetta er veröld mín
milli lyfja
Þetta er veröld mín
og enginn tekur hana frá mér
Nokkurn tíman