Fyrir fáeinum árum kynntumst við
og fannst mér þú mjög skemmtileg
En núna skortir mig sálarfrið
því smátt og smátt gleymirðu mér

Ég skil ekki hvað ég hef gert
svo hræðilegt til að eiga þetta skilið
Kannski er líf mit einskis vert
Er vinátta okkar nú í eilífri bið?

ég hef þekkt þig lengst af okkar hóp
og margt höfum við reynt saman
Nú gef ég frá mér neyðaróp
Núna er ekki eins gaman

Ég sakna þess þegar þú þarfnaðist mín
Þá hugsaðirðu ekki bara um sjálfa þig
Það er meira til í lífinu en eigingirni þín
Er þér nú alveg sama um mig?

Óvíst er hvað mun gerast í sumar
er við förum hvor sína leið
Það er af sem áður var
Óörugg er ég nú og mjög reið

Þú hefur alltaf getað ráðskast með mig
Mikið samviskubit hef ég oft fengið út af þér
Þú hugsar oftast aðeins um sjálfa þig
Ég þarfnast nú tíma með sjálfri mé
Ég finn til, þess vegna er ég