Ég stend hér á auðum vegi
Þú stendur við hlið mér
en horfir þó fast í aðra áttina

Ég horfi fast á þig
Þú heldur höndum þínum að þér
en heldur samt svo fast um hjarta mitt

Og innan skamms genguru í aðra áttina
Ég mun standa hérna ein eftir
Horfa á eftir þér, sem heldur um hjartað mitt

Og bíða….
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"