Einhverjir kannast við rapparann Tupac Amaru Shakur. Fáir vita að hann var meira heldur en bara rappari. Hann var leikari og lék meðal annars í myndunum Poetic Justice ásamt Janet Jackson og Gridlock'd við hlið Tim Roth. Hann gaf einnig út ljóðabók sem ber titilinn “The Rose That grew From Concrete”.

Eitt ljóðanna í bókinni heitir The Rose that grew From Concrete og hljóðar það svona:

Did U Hear about The rose That grew from a crack
in the concrete
Proving Nature's laws wrong it learned 2 walk
without Having Feet
Funny it seems But By Keeping its Dreams
it learned 2 Breathe fresh air
Long Live The rose That grew from concrete
when no one else even cared!

Þessi ljóðabók er doldið skemmtilega uppsett þar sem að hvert ljóð tekur heila opnu. Vinstra megin er ljóðið handskrifað af Tupac en hægra megin er það vélritað. Þetta er að mínu mati ekki flottasta ljóðið í bókinni en með þeim flottari.