Ég var lengi að velta því fyrir mér hvort ég ætti að þora að senda inn ljóð á huga.is en ákvað að láta bara verða að því, annars var lappinn minn að krassa og ég tíndi nánast öllum ljóðunum mínum (sniff sniff)

Þetta ljóð er án titils


Í háum hælum vafraði um
einn hrímkaldan dag og leitaði þín
Kallaði með vörum kulnuðum
kallaði lágt, komdu til mín

Af mér rann regnið blautt
er ríndi í virtist vonlausri leit
Náföl snót með nefið rautt
Kuldinn nísti, samt var ég heit

Niður vangan vatnið rann
inn varir mínar beiskt og salt
Ég leitaði og loksins fann
Lítið hjarta, hrætt og kalt

Einn dag ég gleymdi að þessa dýrð
Drottinn skapaði handa mér
Þú ert barnið hans og í mér býrð
Blessun hans er yfir þér


skramu