Bergmálar í sporum mínum
er drukkna í mannhafi

Rölti meðfram glerilögðum veggjum
skoða andlit sem líða
eins og álfar
eftir spegilmyndinni

Sem læstar hirslur
innihalda gimsteina og gull
opna ég og les hugsanir
þeirra sem líða hjá

Horfi í augu steyptrar stúlku
plastaugun píra á móti
og vel snyrt bros
birtist gegnum grímuna
—–