Velkomin(n) í forgarð vítis.

Hér gefur að líta voldugt hlið í gotneskum stíl
Ókei ég veit þetta kann að virðast gamaldags
en birtan er falleg og vel er það byggt
því þetta hefur nú lítið breyst frá 4000 f.kr. til þessa dags.

Okkur á hægri hönd er einhver ólukkumaður,
hann á víst að hafa virt að vettugi það bann
sem á girnd,hóri og losta hvílir,
og er því verið að marinera hann
þeir reyna að hafa þetta klassískt við innganginn.

Ef við höldum aðeins áfram inn
má sjá innvíglsu nokkura talibana
sem æpandi ríghalda í kóraninn sinn
á meðan árar einbeittir munda rauðglóand,
hvassa og beina, járnteina, og reka þá inn.
villutrú er ekki liðinn.

Nú hér í miðjum gígnum býr Hitler
þarna sjáið þið hann valsandi um, hræddur og ber.
það er til þess að hæglegra sé að nauðga honum,
og svo hann líka stanslaust líkþrár
það er alltaf jafn skondið
þegar hann vælandi á kýli sín sjálfur sker
líkaminn eitt gapandi sár.

Í hinum fjölmörgu klefum hér inn af meginrýminu
eru menn eins og, Sýsifus, Franco, Brútus og Stalín
sem deila á milli sín, hinum alverstu pyntingum
sem hans hátign hr. Dimmalimm
lætur sér detta í hug.
Svona aðferðir eins og eigið fitusog og slagæða reipitog,
líffærabolti og það að setja höfuð inn í eiginn rass,
sem er hegning á of miklu stolti.

Jú og svo eru hér upp um alla veggi brennandi,
hinir minniháttar misindismenn og drottinmóðgarar
Já hér er ávallt allt í suðumarki, kæru helfarar.
Blóðið, ælan, tárin og gallið fossar og vellur,
hegnandi púkasvipan títt á ólgandi holdhafið skellur!

En nú ferðinn á enda, sérðu á hvað ég er að benda?
þetta er klefinn þinn.
þú ættir að geta passað thig á hárbeittum göddunum
og jafnvel á lekandi sýrum og eiturmýrum
en enginn sleppur undan holdtærandi, ærandi LOGUNUM!