Á hægri ferð
niður Bankastrætið
skaust óljós sorg
hraðar en hljóðið
léttari en fjöður
gegnum huga minn,
í baksýnisspeglinum
þekkti ég strax
þessar ávölu mjaðmir.