Traust…

Legg ég mína lund við lið
Standa mun ég orð mín við
Þegar leitar þú mín til
Skal ég ekki hörfa….

Lúin bein mín brotna ei
Þó grátir þú í faðmi mér
Lof mér nú að vernda þig
Komdu til mín, litla grey.

Þegar sálin sárast kvelst
Upphefð þín í lægð þá dvelst
Velkomin þú ætíð sért
Í ömmu faðminn þinn…..

Ætíð geymi ég gimstein minn….