Ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig!, ég sakna þín ekki lengur,
það kemur fyrir að ég hugsi þess að ég þurfi þig ekkert inn í líf
mitt lengur. Langar ekkert að þekkja þig þú þolir mig hvort sem er
ekki og látir illa við mig, niðurlægir mig jafnvel! Ég elskaði
þig!… ég sver það við líf mitt ég elskaði þig, ég gerði hvað sem
er fyrir þig, mátti varla hugsa til þín án þess að finna fyrir
söknuði kremja hjarta mitt!
Það er ekkert svoleiðis lengur, þú hefur sært mig! Oft hefur þú
sært mig… mis mikið en sárindin ristu oft djúpt, fannst þú kremja
og drepa hjarta mitt! En alltaf fyrirgaf ég, litla druslan!.. já
alltaf fyrirgaf litla druslan þér!… en núna.. ég veit ekki hvort
ég eigi að fyrirgefa þér.. það er engin ást lengur en samt heldur
þú áfram að gera lítið úr mér, særa mig.. ekkert hefur breyst!..
nema eitt.. það er engin fyrirgefning núna!!!!! Þarf þig ekki,
sakna þín ekki, vill þig ekki … ELSKA ÞIG EKKI