Þú ert úlfur í sauðargæru
djöfull í mannsins mynd.
Eitt er víst alveg á tæru
þú ert skrattans lifandi synd

Þú er auli og ekkert annað
mannleysa upp fyrir haus
heilalaus skratti sem sannar
að þú ert hugsunarlaus.

Svo haltu þér djöfulli fjarri
og segðu ekkert einasta orð
það væri mér anskoti nærri
að fremja á þér pottþétt morð.