Það hvernig lítil dýr
læðast upp bak mér
hvert á eftir öðru
þúsundir, milljónir.
Mynda breiða, svarta
línu.
Hefja svo að þekja herðar mínar
skríða niður handleggina,
upp í hársvörðinn.
Svört og gljáandi.
Bak mitt brynvarið,
milljónir lítilla fóta,
augna, fálmara
og fætur mínir,
læri, rass, bak
magi, brjóst
hálsinn og höfuðið
þakið þessum dýrum.
gljásvörtum hugsunum mínum.
Ég veit allt, finn ekkert
ekkert meir.
I don't believe in low fat cooking