Blikandi fagurgrænt hafið speglast í nótt
bjartar en fyrr af djúpri virðingu
fyrir þeim þremur sem fórust í ískallt djúpið

sukku niður meðan seltur sjórinn
þerraði dýr tár mikilla manna

við ógnarsorg ungra föðurlausra barna
vegur mannleg hlýja meira en þúsund orð

þessi jól tendra ég kerti fyrir þeim
“True words are never spoken”