Leggjalöng
hún veður yfir
blómum prýddan
veginn

stilkar blómanna
dragast að henni
og hringa sig
um ökklana

sólin skín
á þykka
svarta
draktina
og hún gætir þess
að óhreinka
ekki skóna sína

í gegnum huga hennar
fljúga myndir
stórar
smáar
skýrar
óskýrar
myndir liðinna ára
myndir dagsins í dag

en andlit hennar hefur verið máð af þeim öllum.






Hérna kemur eitt ljóð frá mér !! :)