Sendu mér eitthvað fallegt,
eitthvað sem segja má.
Ég skal senda þér ástarbréf
á móti ef ég má,

Ég hlakka til að fá þig,
fá að sjá þig hér hjá mér.
Í hjartanu tifar ástarþrá
sem bíður eftir þér.

Ég vil ekki fá að heyra
að þú snúir ekki aftur heim
ég sit hér einn, tárin renna,
ég er einn í eigin geim.