Hjálpaðu mér að fljóta
með tónlistinni.
Lengra lengra.
Hjálpaðu mér að segja
það sem ég finn svo sterkt,
hefja mig til flugs
Frjáls sál.
Skynja mig sem hlekk
í keðju alheimsins.
Sköpunarverk Guðs.
Njóta þess að blaka vængjunum.
Öndunin í samræmi
við þungan vængjasláttinn.
Fullkomlega afslöppuð.
Fljúga yfir há tignarleg fjöll.
Jökla
spúandi hveri.
Gjósandi gíga.
Yfir grösugar brekkur og örfokaland.
Já fljúga yfir fossa og vötn, ár og stórfljót.
Loks útá hafið.
Dulúðlegan….
Stórbrotin sæinn.
Þar sem sjávargolan er hressandi
sölt en seyðandi.
Þar sem öldurnar liðast mjúklega
án þess að brotna.
Já áfram áfram
lengra lengra…….