Upptekinn
Upptekinn af stelpunni sem ég reið fyrst.
Upptekinn af stelpunni sem ég fann fyrst fyrir, kramin undir líkama mínum.
Upptekinn.
Hvíslaðu að mér hvað
þú heyrir og ég
skal segja þér hvað
þú segir.
Hvíslaðu að mér hvað
þú heyrir og ég
skal segja þér hvað
þú segir.
Hvíslaðu að mér hvað
þú heyrir og ég
skal segja þér hvað
þú segir.
O.s.frv.O.s.frv.O.s.frv.
Flóttinn er mjög erfiður, jafnvel erfiðari en óttinn.
Þegar ég fer á fætur þá bursta ég á mér tennurnar, fæ mér að borða og síðan kannski fer ég bara í burtu og kem aldrei aftur, ha, hvað segirðu um það mellan þín?
Stundum finnst mér eins og að tíminn sé.
Heyrðu þekkir þú leiðina til.
Veistu það að mér finnst að þú ættir bara að gera það sem að þér finnst rétt.

Fyrst notaði ég venjulegu þvottaefnin, en síðan prófaði ég UltraDry og lífið mitt hefur verið miklu betra. Ég trúi ekki að ég hafi ekki fattað það fyrr. En frábært. UltraDry, fyrir þig og þína.

Þegar ég hleyp, þá hleyp ég hratt. Ég grínast ekki með hlaupið mitt, ég tek því mjög, mjög svo alvarlega. mjög svo. mjög svo. mjög svo. já, já, ég er alveg sammála. akkúrat. einmitt, ég skil þig alveg ástin mín. neeei, ekki láta svona. þú hlýtur að vera að grínast. já, guð, ég er alveg sammála þér. sagði hún það? nei ég trúi þér ekki.

Mistök eru til að nota en ekki eyða, þess vegna er heimskulegt að nota strokleður.

Þegar ég vakna, fer ég að sofa og þegar ég svef þá veistu hvað gerist er það ekki elskan?

Ég er hræddur. Hræddur við að lifa, en ég þrái dauðann.
Ég er dauður. Dauður við að þrá, en ég lifi óttann.