Sambands uppgjör

Ást mín er yfirþyrmandi,
ást mín er endalaus.
Samt fór ég frá þér.
Líf mitt ég kaus.

Ég sá þig brotna niður,
sá líf þitt bresta.
Ég þoldi ekki eymdina,
vildi ekki líf mitt þar festa.

Við vorum óaðskiljanleg,
við vorum eitt.
Föst í vef fíknarinnar,
við vorum ekki neytt

Ég hugsa til þín ennþá,
með yl í hjarta mínu.
Vildi að ég gæti hjálpað þér,
að breyta lífi þínu.

Það tók styrk von og kærleika,
að fara þessa leið.
Ég elskaði þig einlægt,
og hjarta mitt sveið.

Ég óska þér hamingju,
styrk, von og kærleika.
Ég veit þú blúsar gítarinn
og hugsar til mín fallega.

-Kitiara-

Ég skrifaði þetta til fyrrverandi, hálfu ári eftir að við hættum saman. Ég bætti við einu erindi og lagaði það aðeins áður en ég póstaði þessu núna. Ég vona að þið segið mér ykkar álit kæru hugarar.
Diamonds arn´t forever….. Dragons are