R.I.P

Ég reyni að hugsa skýrar enn fyrr
Því núna er eins og tíminn standi í stað
Allt snýst í hringi en samt stend ég kyrr
Ég finn ekki kjarna þess hvað er að

Kannski er það útaf sorginni sem ég ber
Eða útaf kvíða við því að missa hann kannski líka
Ég finn vonina koma en aftur hún fer
Ef hann fer frá mer afber ég ekki sorg þá slíka

Vinur minn kær hvaddi okkur öll með mikilli sorg
Hann fór í ferðalag sem aldrei mun taka enda
Ég afber ekki lengur að lifa við þessi huga míns org
Hvar get ég fallið, hvar á ég að lenda

Ég sakna hans, eins og við öll gerum
En það er hans vilji sem knýr mig til að vakna
Ef hann vissi hversu mikla sorg við berum
Hvernig getum við hans hætt svona að sakna